Um mig
UM MIG
Anna Margrét Smáradóttir
Anna Margrét Smáradóttir útskrifaðist úr Kennaraháskóla Íslands, árið 2004, sem myndlistarkennari. Hún hefur að mestu starfað við kennslu síðan. Að skapa hefur alltaf blundað í henni og má segja að útrásin fyrir sköpunina í gegnum árin hafi að mestu komið í gegnum kennsluna, þar sem hún er stöðugt að finna ný verkefni og breyta og bæta kennsluháttunum sínum.
Hún hefur sótt fjölda námskeiða í olíumálun, meðal annars hjá Þuríði Sigurðardóttur.
Anna Margrét vinnur með olíu, akryl, pastelkrít og blandaða tækni.
Hún er þekkt fyrir að nota mismunandi tækni til að skapa fjölbreytt og áhrifamikil verk sem vekja oft athygli á persónulegum þáttum mannlegrar tilvistar.
Hún hefur haldið tvær opinberar einkasýningar og eina sem var frumraun hennar en hana hélt hún heima hjá sér.
Anna Margrét er listakona sem leitar stöðugt nýrra leiða til að tjá sig í gegnum verkin sín.
